Sumarið er á næsta leiti og maður trúir því í alvörunni að það gæti komið þetta árið.
Við í Ullarverinu erum spenntar fyrir sumrinu. Þetta er okkar fyrsta sumar á markaðnum og við erum mjög þakklátar fyrir móttökunum sem Ullarverið hefur fengið. Það er greinilegt að það var vöntun fyrir álíka verslun hér í uppsveitunum.

Við erum endalaust að bæta við okkur nýjum garntegundum og sérhæfum okkur í vönduðu ullargarni.
Þegar verslunin opnaði í nóvember hófum við samstarf við birgjann West Yorkshire Spinners í Bretlandi og erum með fimm yndislega mjúkar garntegundir frá þeim. Við erum að bæta við þeirri sjöttu sem er ný lína hjá þeim. Solstice er blanda af ull, Lyocell og Cashmere. Það er væntanlegt í verslun eftir 2 vikur.
Við erum einnig að hefja samstarf við nýjan birgja frá Bretlandi sem heitir Blacker Yarns. Þaðan erum við að fá þrjár nýjar garntegundir, Samite Silk Blend sem er blanda af ull og endurunnu silki, Bam-Boozle sem er blanda af ull og bambus og Gotland DK sem er 100% ullargarn. Nýja garnið frá Blacker Yarns er væntanlegt í verslun núna á næstu dögum.
Allar þessar garntegundir fást einnig í vefverslun okkar en sjón er sögu ríkari og það að handfjatla þetta yndislega ullargarn er engu líkt.